Bæjarstjórn ákvað að efna til íbúakosningar um samninginn og fylgiskjöl hans. Með kosningunni gefst íbúum kostur á að taka afstöðu til tillögunnar áður en málið heldur áfram.

Sambærileg leið var farin vegna uppbyggingar Miðbæjar Selfoss árið 2018. Þá tóku um 55% kosningabærra íbúa þátt.