Íbúakosning · 5.–15. desember 2026
Íbúar ráða ferðinni
Í kosningunni 5.–15. desember taka íbúar afstöðu til uppbyggingarsamnings Svf. Hornafjarðar og Landsbyggð hf. um nýjan miðbæ á Höfn. En um hvað snýst þetta? Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að horfa á meðfylgjandi myndband.
Uppbyggingarsamningur sem allir njóta góðs af
Íbúakosningin snýst ekki einungis um skipulag, heldur um fjölþættan uppbyggingar- og samstarfssamning milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggð hf. Samningurinn nær yfir skipulagsmál, lóðaúthlutanir, fyrirhugaða uppbyggingu, verkaskiptingu, ábyrgð aðila og áætlaða tímalínu. Hægt er að nálgast öll þessi skjöl hér meðfylgjandi.
Um ráðgefandi kosningu er að ræða, en bæjarstjórn hefur lýst því yfir að niðurstaðan verði lögð til grundvallar áframhaldandi meðferð málsins. Samkvæmt samningstillögunni fellur samningurinn sjálfkrafa niður ef meirihluti íbúa hafnar henni í kosningunni.
- Uppbyggingarsamningur um nýjan miðbæSamningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar, dagsettur 31. október 2026. Tillagan sem borin er undir atkvæði.
Helstu staðreyndir um íbúakosninguna
Hvenær?
- Kosningin stendur yfir frá og með 5. desember til og með 15. desember 2026.
Hvar?
- Kosið er í ráðhúsinu á Höfn, þar sem er opið alla daga milli kl. 9 og 15, einnig á helgardögum.
- Íbúar í Öræfum geta kosið í Hofgarði laugardaginn 5. desember kl. 9–15.
- Ekki er boðið upp á utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
Hverjir?
- Allir íbúar í Hornafirði, 16 ára og eldri, hafa kosningarétt.
Kjörseðillinn lítur svona út
Á fundi bæjarstjórnar 3. nóvember 2026 var samþykkt tillaga um að efnt yrði til ráðgefandi íbúakosningar um fyrirhugaðan samning Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar hf., dags. 31. október 2026, ásamt fylgiskjölum, um uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn sbr. 107. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og reglugerð nr. 922/2023 um íbúakosningar sveitarfélaga.
Samþykkir þú framangreinda tillögu um samning við Landsbyggð?
Hvað gerist eftir kosninguna?
Ef meirihlutinn samþykkir tillöguna
Samningurinn tekur gildi samkvæmt ákvæðum hans. Sveitarfélagið og Landsbyggð vinna þá áfram að verkefninu á þeim grunni. Í tímaáætlun samningsins er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist árið 2027.
Ef meirihlutinn hafnar tillögunni
Samningurinn fellur niður samkvæmt ákvæðum hans. Sú uppbygging sem þar er lýst fer því ekki fram á grundvelli hans. Gildandi skipulag heldur áfram að gilda.
Í dagTillagan
Svæðið sem samningurinn nær til – í dag og samkvæmt tillögunni. Dragðu stikuna.
Hver eru áhrif niðurstöðunnar?
Kosningin er ráðgefandi gagnvart bæjarstjórn, nema hún hafi ákveðið að binda hendur sínar. Bæjarstjórn hefur lýst því yfir að niðurstaðan verði lögð til grundvallar áframhaldandi meðferð málsins. Samkvæmt samningstillögunni fellur samningurinn sjálfkrafa niður ef meirihlutinn hafnar henni.
Hverjir hafa kosningarétt?
Kosningarétt hafa þeir sem eiga kosningarétt í sveitarfélaginu og eru á kjörskrá. Kosningaaldur í þessari kosningu er 16 ár. Kjósandi þarf að hafa náð 16 ára aldri í síðasta lagi 15. desember.
Hvenær?
5.–15. desember 2026, kl. 9–15
Kosið er alla daga á tímabilinu, líka laugardaga og sunnudaga.
Hvar?
Í ráðhúsinu á Höfn
Kosið er í ráðhúsinu á Höfn. Ekki er boðið upp á utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Íbúar með lögheimili í Öræfum geta einnig kosið í Hofgarði laugardaginn 5. desember kl. 9–15. Kosning í Hofgarði fer aðeins fram þann dag.
Hvenær?
Lestu samninginn og fylgiskjölin
Hér má lesa samningstillöguna og sex fylgiskjöl hennar. Samningurinn er tillagan sem borin er undir atkvæði; fylgiskjölin veita nánari upplýsingar um efni hennar. Skjölin opnast í nýjum glugga.
- Uppbyggingarsamningur um nýjan miðbæSamningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar, dagsettur 31. október 2026. Tillagan sem borin er undir atkvæði.
- Viljayfirlýsing frá 2025Yfirlit yfir lóðir og svæði sem samningurinn tekur til.
- DeiliskipulagsuppdrátturUppdráttur 2537-DSK-101, útgáfa 3, dags. 29. október 2026. Batteríið arkitektar.
- Greinargerð og skipulagsskilmálar Samningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar, dagsettur Forsendur, markmið og skilmálar tillögu að deiliskipulagi. Útgáfa 3, dags. 29. október 2026.
- LóðauppdrátturÁætluð áfangaskipting og tímalína uppbyggingarinnar 2026–2033. Drög dags. 29. október 2026.
- Reglur um úthlutun lóðaViljayfirlýsing Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar frá 9. október 2025, undirrituð.
- Áætluð tímalína verkefnisÚthlutunarreglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar, samþykktar 14. júlí 2026.
Er eitthvað óljóst?
Hér á vefnum eru ýmsar spurningar eru svör um uppbygginguna, skipulagið og samningana milli Landsbyggðar og Sveitarfélagsins.
Skoða algengar spurningar