Deiliskipulagið setur ramma um staðsetningu bygginga, hæðir og umfang. Myndir og teikningar sýna núverandi tillögu og fylgja samningnum sem forsendur fyrir áframhaldandi vinnu og fjármögnun.
Endanleg hönnun einstakra húsa getur tekið breytingum innan þess ramma sem skipulagið og samningurinn setja. Breytingar sem hafa áhrif á skipulag eða meginforsendur verkefnisins þurfa að fara eftir viðeigandi ákvörðunar- og skipulagsferlum.