Samningstillagan setur tímamörk og úrræði ef framkvæmdir dragast. Þar er gert ráð fyrir að Landsbyggð hefji framkvæmdir þegar lóðir eru byggingarhæfar og ljúki hóteli og Heppusvæði innan fimm ára frá gildistöku deiliskipulags, þó eigi síðar en sex árum eftir hana.
Ef áfangi tefst um 180 daga miðað við framvinduáætlun getur sveitarfélagið, eftir að hafa skorað á Landsbyggð að bæta úr og veitt 90 daga frest til þess, afturkallað viðkomandi lóðir samkvæmt samningnum.