Samningstillagan gerir ráð fyrir að fjármögnun sé staðfest fyrir hvern áfanga áður en til úthlutunar lóða kemur. Landsbyggð þarf að leggja fram staðfestingu fjármálastofnunar á fjármögnun viðkomandi áfanga ásamt tímaáætlun um upphaf framkvæmda.
Þetta þýðir að sveitarfélagið úthlutar ekki lóð fyrir áfanga fyrr en skilyrði samningsins um fjármögnun hafa verið uppfyllt.