Tillagan gerir ráð fyrir að Hepputorg komi í stað bílastæða á Heppu. Í staðinn koma ný almenningsstæði á jaðri svæðisins og við götur. Gert er ráð fyrir nýjum bílastæðum allt í kringum Heppusvæðið, við Víkurbraut og meðfram Víkurbraut og Heppuvegi, og fl. Á Miklagarðsbryggju er gert ráð fyrir stæðum sem nýtast samhliða hafnarstarfsemi. Einnig er fyrirhugað bílastæðaplan sunnan hótelsins til að mæta aukinni þörf á álagstímum.