Heppuvegur verður einstefnu- og vistgata þar sem ökutæki geta farið um, en gangandi njóta forgangs. Aðkoma íbúa, vöruafgreiðslu og neyðarbíla verður áfram tryggð.
Víkurbraut færist til vesturs á kaflanum milli Heppuvegar 5 og bragganna. Ný gata, Bárugata, tengir Víkurbraut og Hafnarbraut. Hafnarbraut lokast sem akstursleið framan við Pakkhúsið.