Falli tillagan í kosningunni fellur uppbyggingarsamningurinn niður samkvæmt ákvæðum hans. Landsbyggð á þá ekki kröfu á sveitarfélagið vegna þeirrar uppbyggingar sem samningurinn tekur til.
Gildandi deiliskipulag frá 2011 heldur gildi sínu. Nýja uppbyggingin sem samningurinn lýsir verður ekki framkvæmd á grundvelli hans. Kosningin tekur ekki afstöðu til þess hvort sveitarfélagið kynni síðar að vinna að annarri tillögu.