Landsbyggð hefur staðið straum af kostnaði við þróun verkefnisins og á samkvæmt samningstillögunni ekki kröfu á sveitarfélagið ef henni er hafnað. Samningstillagan gerir þó ráð fyrir að sveitarfélagið greiði helming tiltekins þróunarkostnaðar ef það nýtir tillögur eða hönnun Landsbyggðar í eigin uppbyggingu innan fimm ára.