Tillagan gerir ráð fyrir að Vigtin víki og starfsemi hennar flytjist. Hvenær það nákvæmlega verður er óráðið. Vigtarsvæðið verði mótað sem almenningsrými og tenging milli Heppuhæðar, Bárubyggðar, hótelreits og hafnar.
Hafnarbraut lokast sem akstursleið framan við Pakkhúsið. Nánari útfærsla svæðisins verður unnin í samráði sveitarfélagsins og Landsbyggðar.