Í Bárubyggð er gert ráð fyrir Bárugarði með leiksvæðum, opnum almenningsrýmum og gönguleiðum. Leiðirnar eiga að tengja heimili við Báruna, sundlaugina, íþróttasvæðið og skólann án þess að fara yfir akbraut.

Braggarnir gætu nýst sem sameiginleg aðstaða fyrir börn, ungmenni og bæjarbúa. Hugmyndir sem hafa verið nefndar eru meðal annars körfubolti, klifur, padel og viðburðir. Endanleg notkun þeirra hefur ekki verið ákveðin.