Lóðirnar í Óslandi eru utan skipulagssvæðisins og samningsdrögin gera ráð fyrir að þær geti komið til úthlutunar í síðari áfanga. Vilyrði vegna þeirra fellur niður ef lóðunum hefur ekki verið úthlutað fyrir 31. desember 2031.

Samkvæmt framvindutillögu er uppbygging þar hugsuð sem mögulegur síðari áfangi. Sveitarfélagið tekur síðar afstöðu til þess hvort, hvenær og með hvaða hætti svæðið verður byggt upp.