Tveir af bröggunum standa áfram og munu fá nýtt hlutverk. Hugmyndin er að lagfæra þá en varðveita hrátt yfirbragð þeirra. Þeir falla vel að hverfinu og geta skapað fjölbreytni í mannlífinu. Notkunin getur þróast með tímanum og tekið mið af hugmyndum íbúa og grasrótarstarfs.

Meðal hugmynda eru leiksvæði, körfuboltavöllur, padel, líkamsrækt, klifur, hjólageymsla, sala á jólatrjám eða flugeldum, tónleikar og aðrir viðburðir. Þetta eru möguleikar sem hafa verið nefndir, ekki endanleg ákvörðun um notkun. Við fögnum hugmyndum að nýju hlutverki bragganna.