Heppa, Íshúsið og Pakkhúsið standa áfram og verða hluti af umhverfi Hepputorgs. Braggarnir standa áfram og er fyrirhugað að þeir fái nýtt hlutverk. Tillagan gerir ráð fyrir endurbyggingu Miklagarðs, nái aðilar samkomulagi um hvernig staðið skal að þeirri uppbyggingu.
Veiðarfæra-, vöru- og kartöflugeymslur við Víkurbraut og Heppuveg víkja í áföngum fyrir nýrri byggð. Landsbyggð hefur tryggt sér ráðstöfunarrétt yfir þessum húsum.