Landsbyggð greiðir kostnað við hönnun, skipulagsgerð, rannsóknir og framkvæmdir innan lóða. Þar undir falla meðal annars hótelið, hús við torgið, íbúðir, bílastæði á hótellóð, við Bátstanga og innan lóða í Bárubyggð. Landsbyggð greiðir einnig gatnagerðargjöld samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið annast götur, stíga, torg og veitutengingar utan lóða, líkt og í öðrum hverfum. Samkvæmt samningstillögunni hefst vinna sveitarfélagsins við viðkomandi áfanga ekki fyrr en Landsbyggð hefur fengið lóðum úthlutað og lagt fram staðfestingu á fjármögnun.