Tillaga að nýju deiliskipulagi er gerð fyrir um 7,15 hektara svæði og er ætlað að leysa af hólmi gildandi skipulag Hafnarvíkur–Heppu–Hafnar frá 2011. Svæðinu er skipt í þrjá meginhluta: hótelreit við höfnina, Heppuhæð með nýju Hepputorgi og Bárubyggð, þar sem íbúðir koma í stað iðnaðarhúsa.

Víkurbraut færist til vesturs á kaflanum milli Heppuvegar 5 og bragganna. Ný tengigata, Bárugata, tengir Víkurbraut og Hafnarbraut. Heppuvegur verður einstefnu- og vistgata. Hafnarstígur er fyrirhugaður meðfram höfninni frá hótelreit að Hepputorgi.