Sveitarfélagið Hornafjörður leitaði til Landsbyggðar um þróun nýs miðbæjar. Bæjarstjórn samþykkti viljayfirlýsingu um verkefnið 9. október 2025. Landsbyggð hefur einnig tryggt sér ráðstöfunarrétt yfir lóðum Skinneyjar-Þinganess við Víkurbraut og Heppuveg. Lóðum sveitarfélagsins, þar á meðal hótelreit og lóðum á Heppuhæð, yrði úthlutað í áföngum samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins og að uppfylltum skilyrðum samningsins.