Tillagan gerir ráð fyrir hóteli við höfnina, 6.500–7.000 fermetrum að stærð, á allt að þremur hæðum og með allt að 120 herbergjum.

Á Heppuhæð er gert ráð fyrir blandaðri byggð, um 3.050 fermetrum á allt að tveimur hæðum. Þar af eru um 950 fermetrar ætlaðir íbúðum og um 2.100 fermetrar verslun og þjónustu.

Í Bárubyggð er gert ráð fyrir um 85 íbúðum í tveggja til þriggja hæða byggð. Tölurnar eru áætlaðar og ráðast af endanlegu deiliskipulagi og hönnun.