Tillagan gerir ráð fyrir samfelldari og þéttari byggð en þeirri sem nú er á iðnaðarsvæðinu, en byggðin verður lágreist. Hús verða að hámarki þrjár hæðir og við Hepputorg tvær hæðir.

Þéttleikinn er hugsaður til að mynda skjól og afmarka götur og torg. Við mótun rýmisins er horft til smærri kvarða, stuttra gönguleiða og sjálfstæðra húsa.