Ekki er gert ráð fyrir því. Smábátahöfnin og bryggjurnar standa óbreyttar og bátarnir sigla sömu leið inn og út. Hótelið rís á lóð við Bátstanga og hafnarstígurinn liggur meðfram höfninni.

Í samningnum er kveðið á um að við skipulagsgerð og uppbyggingu skuli tryggt áframhaldandi aðgengi almennings að höfninni og að aðgengi rekstraraðila verði útfært í nánu samráði við þá. Sveitarfélagið annast frágang athafnasvæðis fyrir smábátastarfsemi austan hótelreits. Samningurinn gerir einnig ráð fyrir samráði við hagsmunaaðila um skipulag, framkvæmdir og aðgengi að höfninni.

Hótel og smábátahöfn geta átt samleið á sama svæði. Víða um heim standa hótel við starfandi hafnir þar sem bátar koma og fara, afla er landað og sjómenn sinna störfum. Samspil hafnarstarfsemi og annarrar starfsemi er hluti af sérstöðu slíkra svæða. Skipulagið miðar að því að höfnin verði áfram starfandi höfn og bátar á leið til og frá bryggju áfram hluti af daglegu lífi á svæðinu.